Bifreiðaverkstæði - Innflutningsfyrirtæki


Bifreiðaverkstæðið var stofnað 1985 í Hafnarfirði af undirrituðum og fékkst við allar almennar bílaviðgerðir. Árið 2000 flutti fyrirtækið að Holti v/Vegamót, þar sem það starfar nú. Frá sama tíma bættust við viðgerðir á landbúnaðartækjum og dráttarvélum ásamt öðrum vélaviðgerðum. En fyrirtækið er nú aðallega í almennum bifreiðaviðgerðum ásamt innflutningi á vélum og tækjum sem verður sífellt stærri liður í starfseminni.

Við höfum getað boðið góð tæki á afar góðu verði og munum keppast við að halda því áfram. Einnig bjóðum við viðgerðar- og viðhaldsþjónustu fyrir þau tæki ásamt varahlutum.

Sérpöntum einnig valin tæki og tól eftir þörfum. Við bjóðum viðskiptavinum okkar góðar vörur, gott verð og hagstæð VISA lán vegna kaupanna.

 
 

Þorsteinn Sigurðsson
framkvæmdastjóri

 

 

Skoðaðu nýju rafsuðuvélina frá MIG... smelltu á myndina.

 

Beinn innflutningur tryggir betra verð.

 

 

 

Beinn innflutningur
- betra verð:

DJ Power rafstöðvar
30 kw 230/400v

Kynntu þér Inverter 1600
rafsuðuvélarnar okkar

Inverter og Shine rafsuðuhjálmar - Auto Dark

Vatnsdælur 2ja, 3ja og 4ra
tommu, dísil- og bensín

Fjölbreytt úrval af góðum
suðuvélum á hagstæðu verði

Start- og hleðslutæki
12 og 24 volta öflug tæki
 
Upplýsingar í síma
895-6662
 
 
 

 

 

 

  Bílaverkstæðið Holt | Holt við Vegamót | 311 Borgarnes | Sími: 435-6662 / 895-6662 | holts123@gmail.com

© 2010, Holt1.is